![Portada del podcast](https://d3wo5wojvuv7l.cloudfront.net/t_square_limited_480/images.spreaker.com/original/6c2e9861171081bf2a94ac18beb999dc.jpg)
Contactos
Información
Hlaðvarpsþættir úr smiðju Borgarbókasafnsins, bókaspjall, vangaveltur og ýmislegt fleira.
![Portada del podcast](https://d3wo5wojvuv7l.cloudfront.net/t_square_limited_480/images.spreaker.com/original/6c2e9861171081bf2a94ac18beb999dc.jpg)
Bókaspjallið | Borgarbókasafnið
Bókaspjallið | Borgarbókasafnið
Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020
30 OCT. 2020 · Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.
Lesið er úr eftirfarandi bókum:
Bölvun Múmíunnar eftir Ármann Jakobsson
Drauga-Dísa eftir Gunnar Theodór Eggertsson
Dúkka eftir Gerði Kristnýju
Eitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir
Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck
Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur
Skrimslavarpid
5 NOV. 2019 · Í tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu.
Hryllingshlaðvarpið
25 OCT. 2019 · Björn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi.
Bókstaflegir titlar!
4 OCT. 2019 · Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther.
Byggt á bók
27 SEP. 2019 · Maríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum.
Kvikmyndatónlistarspurningaleikurinn!
19 SEP. 2019 · Í tilefni þess að Hildur Guðnadóttir vann Emmy verðlaunin fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl tók Esther þá Inga og Jóhannes í örstuttan kvikmyndatónlistarspurningaleik. Esther spilaði stutt brot úr hinum ýmsu kvikmynda- og þáttatónlistarverkum og Ingi og Jóhannes giskuðu á höfund og þátt/kvikmynd.
Skólabækur og fingrasetning
13 SEP. 2019 · Jóhannes Árnason, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir ræða um bækurnar sem framhaldsskólanemum er gert að lesa. Leslistarnir eru að einhverju leyti fjölbreyttir, eins og reynsla þáttastjórnenda. Á meðan þau yngri gerðu stuttmyndir byggðar á Galdra-Lofti lærði fulltrúi eldri kynslóða á ritvél.
Hvað lásum við í sumar?
7 SEP. 2019 · Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un).
Bækur að kvikmyndum
22 JUN. 2019 · Ingi, Björn Unnar og Jóhannes skeggræða (að Inga utantöldum) hvaða bækur væri gaman að gera að bíómyndum!
Giskaðu á bókina
15 JUN. 2019 · Ingi spurði Guttorm og Esther spjörunum úr um daginn þegar Stjörnustríðið var tekið fyrir í hlaðvarpinu. Í þættinum í dag nær Esther fram hefndum þegar hún lætur Inga og Björn Unnar giska á bókatitla út frá aðeins sex orðum!
Hlaðvarpsþættir úr smiðju Borgarbókasafnsins, bókaspjall, vangaveltur og ýmislegt fleira.
Información
Autor | Hlaðvarp Borgarbókasafnsins |
Categorías | Cultura y sociedad |
Página web | www.spreaker.com |
borgarbokasafn@borgarbokasafn.is |
Copyright 2024 - Spreaker Inc. an iHeartMedia Company